Tucumán er frábaerlega subbuleg borg. Og yndislega lítid ad gera tar. Og aedislegt ad gera ekki neitt í risastórum gardi ekki langt frá midbaenum, sem er líka pínu subbulegur. Mér tókst reyndar ad klippa framan af annari stóru tánni minni, med ad reka hana í brotna hellu, med tilheyrandi blódi út um allt. Tad er afar ógedfellt ad ganga um í flip-flops med heitu klístri í... sérstaklega tegar madur veit ad tad er blód. Tarna er komid annad slasid mitt í tessari ferd. Hitt verandi ógnarstór marblettur sem hinsvegar er horfin og ég búin ad cancela umsókn mína vardandi póstnúmer fyrir hann.
Skruppum til Tafí del Valle, lítils fjallabaejar. Ferdin tangad er mjög gott daemi um tad ad tad er ekki alltaf áfangastadurinn sem skiptir mestu máli heldur ferdin tangad. Unadslega falleg leid upp skógi vaxin fjöll og tad sem jók enn meira á spennuna, tverhnípi nidur ödru megin og nokkurnveginn einbreidur vegur. Og beygjurnar, eda bugdurnar ekki beint hannadar fyrir rútubíla. Frekar taugatrekkjandi. Tafí sjálfur er hinsvegar í berangurslegum dal og kannski ekki sá líflegasti í álfunni. Vid fundum samt bar, og tar virtust vera samankomin öll staerstu skordýr baejarins med tilheyrandi látum!
Annars er tema vikunnar hundar sem "nebba" mann. S.s. koma aftan ad manni og manni alveg ad óvörum stinga blautu og köldu trýninu á bera fótleggi eda hvad sem er í bodi. Furdulega ótaegilegt.
ps. Hallgerdur skrifadi, efast um ad Stefán myndi nota svona vaemin lýsingarord ;) og broskalla.
Saturday, March 22, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Ég held að þessi tásulýsing hafi gert útslagið, vil bara vara ykkur við að þið munuð missa ykkar helsta aðdáanda með frekari og nánari lýsingum af tásuslysum. Mér verkjar ofboðslega í tásuna mína núna, Takk Hallegrður.
-Ykkar einlægi aðdáandi og ávalt lesandi bloggið ykkar.
Frábæra Dögg
Hvaða hvaða... það er sko ýkt stuð að vera nebbaður. Það er svona svipað og þegar einhver kemur og gefur manni blautan afa í eyrað.
Annars er minna stuð að rústa á sér tánni, sérstaklega ef maður heitir Hallgerður og HATAR tær! ha ha
Lille! Geðveikt bögg að vera m sár á tánni í svona ferðalagi.
hahaha, yndislega fólk. Ekki eyðileggja meira af þér annars verður ekkert eftir að giftast!
-siggi
Það er einmitt spurning hvort tærnar séu fallegri ef það er minna af þeim... En þetta grær nú áður en þú giftir þig!
Haha. Amma sagdi tetta alltaf vid mig tegar eg var lítil. En núna verdur madur ad fara ad passa sig, annars graer tad bara ekki neitt!
Post a Comment