Monday, July 23, 2007

Arcade Fire


Arcade Fire Var stofnuð árið 2003 í Montreal Kanada af hjónunum Win Butler og Régine Chassagne. Arcade Fire gáfu sjálf út EP plötu árið 2003 sem hét ekki neitt en oftast kölluð ' Us Kids Know EP' og seldu þau hana á tónleikum. Hljómsveitin var þekkt fyrir að spila á mikin fjölda hljóðfæra og þótti frábær á tónleikum og var það einmitt þess vegna sem þau komust á samnig hjá Merge Records sama ár og bandið var stofnað. ári seinna gáfu þau út meistarastikkið 'Funeral' sem tekin var upp á viku í hótelherbergi í Montreal. Nafn plötunar er tilkomið vegna þess að nánast allir í hljómsveitinni misstu ástvini sama ár, og fjallar platan mikið um dauðann og söknuð, en samt á bjartsýnan hátt en ekki verið að hella sér alveg í þunglyndið. Platan vann til ýmisa verðlauna og var að marga mati plata ársins 2004 og reyndar 2005 líka þar sem hún kom út ári seinna í Bretlandi. Platan fór í gull bæði í Bretlandi og Kanada, seldist í rúmum 500.000 eintökum, sem þykir stórkostlegur árángur miðað við sjálfstætt plötuútgáfu fyrirtæki og lágmarks sjón- og útvarps kynningu. Uppselt var á alla tónleika hljómsveitarinnar í 'Funeral' túrnum og eftir hann voru þau fengin til að hita upp fyrir David Bowie og U2 og heimtuðu bæði Bono og Bowie að fá að syngja með þeim á tónleikunum enda telja þeir báðir Arcade Fire vera eina bestu hljómsveit í heiminum í dag.
Hljómsveitin gaf út sína aðra plötu 'Neon Bible' í mars 2007 og sló hún heldur betur í gengn um allan heim. Platan er hressari en 'Funeral' og aðgengilegri og sýnir það sig í sölutölum. Þrátt fyrir mikið úrval hljóðfæra á 'Funeral' þá eru mjörg ný á 'Neon Bible' sem setja sterkan svip á plötuna, svo sem orgel, hurdy gurdy, ungversk sinfoníuhljómsveit og kór kanadískra hermanna.
Þetta er alger Must See hljómsveit á Pukkelpop og þeir sem nenntu að lesa þetta allt í gegn fáið HÆ5 frá mér á tónleikunum!

- Rebellion (Lies)- af 'Funeral'


- No Cars Go- af 'Neon Bible'




http://www.myspace.com/arcadefireofficial
http://www.arcadefire.com/flash.html

1 comment:

Unknown said...

ég býð þá bara spenntur eftir
hæ5-inu...