Suðurríkja rokk hljómsveitin Kings of Leon var stofnuð árið 2000 og saman stendur af 3 bræðrum og einum frænda þeirra. Nafnið er tilkomið vegna þess að pabba þeirra bræðra og afi hétu báðir Leon og voru þeir báðir prestar sem hafði mikil áhrif á tónlistarsköpun þeirra. árið 2003 gáfu þeir út plötuna 'Youth & Young Manhood' sem var tekið mjög vel, fólk talaði um að tónlistin væra blanda af suðurríkja rokki og strokes-legu indi rokki og hitaði KOL einmitt upp fyrir strokes um bandaríkin. KOL gáfu út sína aðra plötu 'Aha Shake Heartbreak' í lok árs 2004 og var henni mjög vel tekið, af flestum talin betri en fyrsta platan sem þótti tímamótaverk. Til gamans má geta að í The Mighty Boosh (Milky Joe þættinum) þá notar Vince Noir þessa plötu sem spegil og segir hana "a blinding album, much better than their first" og bætir við "they made it really quickly". Hratt og vel vinna þeir KOL svo sannarega því í byrjun árs 2007 gefa þeir út sína 3 plötu 'Because Of The Times' og sögðu hana reyndar hafa verið tilbúna ári áður og eru því í dag vel á veg komnir með 4 plötuna. Þetta eru allt frábærar plötur og þeir eru líka frábærir live, videoin hér að neðan eru flest live og get ég ekki beðið eftir að sjá þá félaga á Pukkel...
-On Call- af plötunni 'Because Of The Times'
-Razz- (Live @ T in the park) af plötunni 'Aha Shake Heartbreak'
-The Bucket- (live) af plötunni 'Aha Shake Heartbreak'
-California Waiting- (live) af plötunni 'Youth & Young Manhood'
-Molly's Chambers- af plötunni 'Youth & Young Manhood'
http://www.myspace.com/kingsofleon
http://kingsofleon.com/
Wednesday, July 25, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment