Wednesday, July 11, 2007

Jack Penate


Jack Penate er breskur indí tónlistarmaður með hring í eyranu. Hann er hálfur breti og hálfur spánverji, fæddur árið 1984, og fyrir þá sem ekki vita þá er það hlaupaár!!!
hann spilar hresst pop/rokk með skemmtilegum ska áhrifum og er mikið hrósað fyrir hressa sviðsframkomu og mjög sérstakan dansstíl. Jack gaf út sína fyrstu 7" árið 2006 og aðeins 1000 eintök voru gerð, en hvert og eitt eintak innihélt polaroid mynd sem hann sjálfur tók. Í apríl á þessu ári gaf hann svo út EP plötuna 'Spit At Stars' og eru videoin tvö hér að neðan af þeirri plötu.

"Spit At Stars"

"Torn On The Platform"


http://www.myspace.com/jackpenate

No comments: