Sunday, March 23, 2008

Salta

Dagur 1:
Sögdum tyngdarlögmálinu stríd á hendur og skelltum okkur í paragliding. Sem var aedi og í rauninni alls ekkert hraedilegt. Meira eins og ad tykjast vera fugl og svífa bara um... que lindo! Stefán var tótt ótrúlegt megi virdast hraeddari uppi í vitanum í Cabo Polonio. Ég lenti aftur á fjalltoppinum sem ég lagdi upp frá, eda var réttara sagt togud nidur úr loftinu af tveimur karlmonnum. Stefán lenti hinsvegar nidri í naesta fátaekrahverfi tar sem lítil born brutu saman fallhlífina hans eins og sannir fagmenn.
Kíktum svo adeins á barinn...
Dagur 2:
Ég litadi hárid á mér blátt. Stód ash-blond (eda réttara sagt "muy rubio ceniza") á pakkanum en kom út meira eins og ash-blue. En madur verdur ad vera alvöru töffari tegar madur fer í rafting, og hvad er meira töff en blátt hár?
Eyddum löööngum tíma á netinu og tad byrjadi ad rigna á medan. Nema rigning er eiginlega ekki rétta ordid. Tad myndadist fjót inni á internetkaffinu!
Fórum í BBQ á hostelinu um kvoldid og kynntumst undarlegu fólki, kemur á óvart! Eitt stykki Breti sem vatt sér inn í umraedurnar med sogu af tví tegar hann smygladi óvart kókaíni inn í Bólivíu. Hann var svo fullur tegar hann faldi tad ad hann fann tad ekki sjálfur.
Image Hosted by ImageShack.us

Gód med canoping hanskana

Dagur 3:
Rafting og canoping. Raftingid var fínt, leidsogumadurinn med oll grínin á hreinu og svona. Svo var BBQ í hádeginu (já, Argentinubúar eru frekar grillud tjód) og svo vír-rennerí eftir mat. Canoping felur í sér ad kraekja sig í vír sem er strengdur yfir dal. Tannig sikk-sakkar madur á milli fjalla a la Charlies Angels tangad til botni dalsins er nád. Ég veit ekki hver fékk tessa furdulegu hugmynd, ég meina tad er ekki eins og madur turfi ad maeta eins og skot til vinnu í naestu fjallshlíd! En mjog skemmtilegt engu ad sídur :)

Saturday, March 22, 2008

Tucumán - Tafí del Valle

Tucumán er frábaerlega subbuleg borg. Og yndislega lítid ad gera tar. Og aedislegt ad gera ekki neitt í risastórum gardi ekki langt frá midbaenum, sem er líka pínu subbulegur. Mér tókst reyndar ad klippa framan af annari stóru tánni minni, med ad reka hana í brotna hellu, med tilheyrandi blódi út um allt. Tad er afar ógedfellt ad ganga um í flip-flops med heitu klístri í... sérstaklega tegar madur veit ad tad er blód. Tarna er komid annad slasid mitt í tessari ferd. Hitt verandi ógnarstór marblettur sem hinsvegar er horfin og ég búin ad cancela umsókn mína vardandi póstnúmer fyrir hann.
Skruppum til Tafí del Valle, lítils fjallabaejar. Ferdin tangad er mjög gott daemi um tad ad tad er ekki alltaf áfangastadurinn sem skiptir mestu máli heldur ferdin tangad. Unadslega falleg leid upp skógi vaxin fjöll og tad sem jók enn meira á spennuna, tverhnípi nidur ödru megin og nokkurnveginn einbreidur vegur. Og beygjurnar, eda bugdurnar ekki beint hannadar fyrir rútubíla. Frekar taugatrekkjandi. Tafí sjálfur er hinsvegar í berangurslegum dal og kannski ekki sá líflegasti í álfunni. Vid fundum samt bar, og tar virtust vera samankomin öll staerstu skordýr baejarins med tilheyrandi látum!

Annars er tema vikunnar hundar sem "nebba" mann. S.s. koma aftan ad manni og manni alveg ad óvörum stinga blautu og köldu trýninu á bera fótleggi eda hvad sem er í bodi. Furdulega ótaegilegt.

ps. Hallgerdur skrifadi, efast um ad Stefán myndi nota svona vaemin lýsingarord ;) og broskalla.

Wednesday, March 19, 2008

Djammmynd frà BsAs

Marìus frà Noregi, Egill, Gummó sjóari og audvitad Stefàn à svolunum heima hjà Agli.

Image Hosted by ImageShack.us


Vard ad fà ad lauma inn einni djammmynd...

Monday, March 17, 2008

Cordoba - Jesus María - Villa Carlos Paz

Cordoba er furdulegur baer (1,3 millur samt) ad tvi leiti ad tar eru gjorsamlega ALLIR á aldrinum 16-26 ára. Cordoba er reyndar háskólabaer en tad naegir ekki einu sinni til ad útskýra öll tessi beib. Tví fólkid tar er líka allt gullfallegt, reyndar mér til mikillar maedu voru stelpunar mun fegurri en strákarnir. Vid höldum reyndar ad gamlingjar og born séu bonnud hérna med logum.

Frá Cordoba skelltum vid okkur í tvaer dagsferdir til tveggja yndislegra torpa. Já, Dögg, núna máttu segja ad vid séum eins og gomul hjón. Dagsferdir! Er til eitthvad plebbalegra en tad? Allavega tà fòrum vid til Jesus Maria til ad skoda einhverjar Jesùtìtaleifar (adallega til ad komast ad tvì hverjir tad voru eiginlega). Daginn eftir skelltum vid okkur til Carlos Paz, sem af lysingunum ad daema àtti ad vera einhverskonar mini-Las Vegas. Casino og pyramidahòtel. Jà svosum smà, en miklu meira bara fràbaerlega krúttlegur baer og allir í lautarferd vid vatnid og voda hamingjusamir med bornunum sìnum. Vid gerdum bara eins og hinir..."when in Carlos Paz". Hittum reyndar vidbjòdslegan hund, eda rèttara sagt hund med vidbjòdslegt sàr sem vildi òlmur vera vinur okkar. Og jà, tad eru alltaf hundar af ollum staerdum og gerdum allstadar og enginn af teim veit hvad "òl" er.

Kynningarefni fyrir leikrit sem er verid ad syna i Carlos Paz. Kannski smà mini-Las Vegas fílingur.
Komst svo ad tví á msn í gaer ad Carlos Paz er heimabaer Sergios hennar Unnar. Audvitad var hùn bùin ad segja mèr ad tékka à tessum bae, en minns löngu búinn ad gleyma. Allavega skemmtilegur stadur og ég skil nùna afhverju Camille var ad hanga tar ;) Vid daudsàum eftir ad eiga rùtudeit um kvöldid.

Èg veit ekki hvad hefur ordid um alla tùristana en vid erum nùna alltaf ì herbergi med lodnum hrjòtandi heimamönnum. Eyrnatappar!!!

ps. Nyjar myndir komnar à www.resdagboken.se

Buenos Aires

Fra Uruguay forum vid aftur til Buenos Aires. I tetta skiptid tokum vid ekki stora ferju sem er klukkutima a leidinni heldur akvadum vid ad taka rutu i 2 tima til ad taka bat i 3 tima!!! en vid frettum ad tetta vaeri falleg leid og tetta var odyrara. Tegar vid komum ad batnum var tetta einskonar straetobatur, t.e.a.s. hann var a staerd vid straeto og var meira segja med straeto saetum! En ja, vid komum til Buanos Aires um kvold og gerdum ekkert vegna treytu. Daginn eftir skodudum vid adal party kirkjugardinn i Buanos Aires sem er bara med grafhysum og er t.d Evita og familia i einu teirra, mjog flott allt saman. Image Hosted by ImageShack.us

Hun Isabella, Belgiska stelpan, elti okkur sem sagt ennta og vorum vid ordin mjog pirrud a henni en vid sluppum vid hana um kvoldid tar sem vid vorum ad fara djamma med Gumma og Agli. Hun drekkur ekki og tar sem islenski sjomadurinn Gummi, sem drekkur bara eda bordar, aldrei baedi a sama degi, neitar ad sita a sama bordi og folk sem drekkur ekki gat hun hreinlega ekki komid med. Vid Hallgerdur forum sem sagt heim til Egils og drukkum okkur vitlaus og sidan forum vid fjogur og norskur vinur teirra a drum and bass klubb og var djammad fram eftir ollu. Tad er kanski otarfi ad minnast a tad en audvitad aeldi eg daginn eftir og fekk blodnasir i kaupbaeti. Um kvoldid forum vid a tango-show sem byrjadi sem lelegt leikrit en endadi bara mjog vel, einn bjor og beint i rummid. a tridja degi gerdum vid bara allt turista dot sem vid attum eftir tar sem tetta var sidasti dagurinn okkar i Buenos Aires.

Friday, March 14, 2008

Cabo Polonio (Uruguay)

Med tví ad skýra bloggid tetta er ég (Hallgerdur) ad fara á bak orda minna um ad segja engum frá tessum stad. Hann er tad frábaer. En ég efast um ad margir sem lesa tetta eigi eftir ad leggja leid sína til Uruguay hvort ed er... og teir sem nenna alla leid tangad eiga fyllilega skilid ad vita af tessum stad. Tetta er líka svona baer sem madur rekst ekkert á, heldur fréttir af frá ödrum ferdalöngum.

Húsid okkar, dooooo
Image Hosted by ImageShack.us


Cabo Polonio er eiginlega frekar eins og eydimörk med Atlantshafi en strandbaer. Fáránlega fallegur stadur. Vid höfdum ekki hugmynd um tad, bjuggumst bara vid einhverjum skítabae af tví ad eina sem vid vissum var ad tad vaeri ekki rafmagn tar. Baeinn einkenna sandöldur sem faerast til í takt vid vindinn. Og vid tessar sandöldur stendur lítid torp. Tar mega engir bílar koma, madur verdur ad kaupa far med sérstökum safaríbílum til ad komast inn í torpid, og langflest húsin hafa hvorki rafmagn né rennandi vatn. Vid rákumst á tvö gistiheimili og hostel en flestir virdast leigja sér hús. Vid maelum med ad skoda fyrst og leigja svo, kostirnir eru mjög svo misógedslegir. Vid endudum fimm manns í húsi fyrir ca. 3 til ad fordast froska, myglu og fýlu! Mjög krúttlegt, alveg vid ströndina, med okkar eigin brunni og hengirúmi og allt. Mér fannst ég mjög húsfreyjuleg ad ná í vatn í brunninn til ad vaska upp.

Minns vid brunninn
Image Hosted by ImageShack.us


Tad var enntá minna ad hafa fyrir stafni í tessum bae en í hinum strandbaenum. Stefán hertók hengirúmid sem hékk í skugga á stéttinni f. framan húsid okkar tar sem hann var enntá skaerbleikur. Á medan lúlludum vid hin á ströndinni, milli tess sem blautir hundar komu ad vekja okkur med blautum kossum (guacala!). Vid gerdum reyndar tad eina sem haegt var "ad gera" í Cabo en tad var ad fara upp í vitann og njóta útsýnisins úr sjálfsmordsháum turninum. Og vid bordudum líka á öllum veitingastödunum í baenum nema einum á tveimur dögum!

Punta del Diablo (Uruguay)

Framhald..
Allt er gott sem endar vel og vorum skutlinu fegin. En vid áttum okkur samt fjótt á tví ad tad verdur ekki vinnandi vegur ad finna eitt einasta hostel í tessum bae í nidamyrkri tar sem baejarstjórnin er greinilega ekkert ad brudla í hluti eins og ljósastaura. Endum á tví ad heilsa upp á tvaer pìur sem voru greinilega útlendingar og taer fylgja okkur á aaaadal partý-hostelid í baenum.

Image Hosted by ImageShack.us


Punta del Diablo var allt sem Punta del Este (wannabe Miami) var ekki. Ekki ein malbikud gata og fullt af hundum, hippum og börum vid ströndina. S.s. ekkert ad gera tarna nema fara á ströndina, lesa og drekka bjór. Nema vesalings Stefáni tókst ad brenna til helvítis í tynnkunni í Punta del Este og gat eiginlega ekki verid utandyra! Svo var mjog skemmtilegt móment tegar vid spurdum um naesta hradbanka og fengum tad svar ad tad vaeru tveir í naesta bae! En ekki einn einasti í innan vid klukkutíma rútuferd!
Svo var líka tekid létt djamm og kíkt (ég, ekki Stefán) á aaaaadal barinn í baenum sem var upplýstur med einu graenu ljósi og svo var reyndar vardeldur fyrir utan. Tar hitti ég fullt af hundum og nokkra Uruguaya og laerdi uruguaeskan framburd og smá slangur. Che Guacho!
Tetta sama kvold hittum vid líka nokkra vitleysinga (Leon frá Týskalandi, Gary frá BNA og Isabel frá Belgíu) sem ákvádu ad skella sér med okkur til Cabo Polonio morguninn eftir.

Friday, March 7, 2008

Uruguay

Jaeja, fra Montevideo forum vid til Punta del este, sem er strandbaer fyrir rika og fina folkid. Tad bua 10.000 manns i tessum bae en fra lok desember og framm i midjan januar bua rumlega ein milljon manns tar. Tannig ad nuna tar sem vid erum a low-season eru bara 10.000 manns herna en ogedslega mikid ad tomum ibudum og hotelum, vaentanlega vantar um tad bil 990.000 ibua til ad fylla allt husnaedi herna tannig ad tetta var mjog mikid Palli var einn i heiminum stemmning, allt ykt fint, bannad ad labba a grasinu og enginn a ferli. En audvitad gatum vid samt fundid nokkra bakpokaferdalanga og farid a fylleri. Daginn eftir voknudum vid thunn og forum i solbad, nema hvad ad eg (Stefan) var adeins thunnari en Hallgerdur og gleymdi ad setja a mig solaraburd svo eg brann i drasl! Tadan var forinni heitid i 700 manna strandbae med vidakofum og moldargotum, algerlega andstaedan vid Punta del Este. Tetta er tad spes baer ad vid gatum ekki einu sinni tekid rutu alla leid, thurftum ad labba fra thjodveginum 5km ad baenum, sem okkur fanst ekkert mal adur en vid logdum ad stad. En rutan var lengur a leidinni en hun atti ad vera svo tegar okkur var hennt ut ur henni var komid kvold og alveg ad verda dimmt. Litid ad gera en bara gefa i og reyna labba 5km adur en tad vard alveg dimmt tar sem tad voru engir ljosastaurar a tessum moldarvegi. Lobbudum 2km adur en tad vard dimmt tannig ad vid hukkudum okkur far hja eina bilnum sem keyrdi tessa blessudu gotu og tad gekk, skelltum okkur aftan a pallinn a gomlum pallbil og brunudum i baeinn.

Uruguay

Tennan morgunin vorum vid ekki of thunn eda full til ad koma okkur til Urugauay. Tokum batinn yfir til Colonia sem er elsti baerinn i Urugauay og er hann A UNESCO World Heritage Site ekki osvipadur Paraty i Braseliu sem vid erum buin ad blogga um eini munurinn er ad vid vorum a low season svo tad var enginn i baenum. Ekki haegt ad blogga mikid um tennan stad, gerdum litid annad en ad rollta eda hjola um og skoda tennan fallega bae, mjog rolegur, engin gotuljos, ekkert stress.
Fra Colonia forum vid i rutu til Montevideo sem er hofudborg Uruguay en eg veit ekki alveg hvad eg a ad segja um tann bae, vid vorum bara eina nott tar einsog i Colonia og tad var rigning og vindur allan timan sem vid vorum tar svo vid skodudum borgina ekkert serstaklega vel.

Buenos Aires

Fra fossunum henntum vid okkur uppi rutu til Buenos Aires, ekki nema 18timar rutuferd tangad en vid erum ordin mjog mjog von tvi ad vera i rutum nuna sem er fint tar sem mer finnst 12tima flug til thailands vera ordid grin nuna. Fundum okkur Hostel, henntum af okkur toskunum og forum ad skoda Buenos Aires. Daginn eftir heldum vid afram ad skoda borgina og er hun mjog hress, Hallgerdur sagdi ad hun vaeri einsog skitug paris, eg hef ekki komid til parisar svo eg verd bara ad trua henni. Um kvoldid forum vid ut ad borda a mjog finum veitingarstad og fengum okkur guddomlegt nautakjot og vin med og borgudum minna en fyrir hambo og kok heima...
Sidan var farid ad djamma, forum med hop af krokkum af hostelinu a risastoran klubb og tar var drukkid og dansad til kl 8 um morguninn sem var kanski ekki tad gafulegasta i heimi tar sem vid turftum ad tjekka okkur ut af hostelinu fyrir kl 11 tann morguninn.
Voknum eftir 2 tima svefn, eg fer og aeli i vaskinn, pakka nidur og staulumst ut. Vid aetludum sem sagt ad fara til Uruguay en eg var svo thunnur ad eg gat tad bara ekki, fundum annad hostel og eg for ad sofa en Hallgerdur aetladi ut ad kaupa ser e-d ad borda og fara svo ad sofa. Nokkrum timum seinna er pikkad i mig og tad stendur madur vid rummid mitt, eg skil ekkert i tvi hver er ad pikka i mig og hef aldrei sed tennan mann adur, tek ur mer eyrnatappana og ta heyri eg hann tala, "Heyrdu stebbi minn, viltu ekki vakna og fa ter bjor" er sagt vid mig a islensku, eg skil ekkert hvad er i gangi og held eiginlega bara ad mig se ad dreyma en svo kemur Hallgerdur og Islendingurinn sem vid hittum i Braseliu skellihlaegjandi inni herbergid, ta hafdi Hallgerdur fyrir tilviljun hitt Gumma og vin hans sem byr i Argentinu uta gotu og tau fengid ser bjor og hangid saman allan daginn. Eg gat natturulega ekki annad en farid a faetur og fengid mer bjor, fyrsti var vondur en svo kom tetta og duttum aftur i tad!

Wednesday, March 5, 2008

Puerto Iguazù



Tìmi til kominn ad blogga um tennan bae. Tad bùa 32.000 manns ì Puerto Iguazù og baerinn samanstendur adallega af raudri mold og... Hmmm? Jaeja Stefàn fèkk Argentíska nautasteik og var mjög hamingjusamur og èg fèkk pasta sem var bragd af og var bara frekar glöd.
En fossarnir voru geveikir Argentínumegin. Brjàladur kraftur og èg er ekki frà tvì ad vid höfum flissad nokkud mikid. Neikvaedu jònirnar sem myndast vid fossa og eiga skv. àkvednum kenningum ad gera mann gladari eiga vìst ad vera sèrstaklega àhrifamiklar vid Garganta del Diablo (tar sem myndin er tekin). Held ad tad sjàist nù bara best à myndunum hvad vid erum glöd, tràtt fyrir gìfurlega rigningu! Reyndar er rigning nokkud sem er löngu haett ad koma okkur à òvart...

Ps. Myndir komnar inn à resdagboken.se! Hallgerdarmegin.