Thursday, July 26, 2007

Booka Shade


Booka Shade er þýsk electrohouse hljómsveit. Strákarnir tveir í Booka Shade eru búnir að gefa út tvær plötur. Memento gefin út 2005 sem er minimalist techno en árið 2006 kom út Movements sem er dansvænari og með söng. Platan Movements er frábær og eru nokkur lög af þeirri plötu hér að neðan sem við höfum öll dansað við...

-Mandarine girl (album version)-


-In white rooms-


-Body language (interpretation)-


http://www.myspace.com/getbookashade
http://www.bookashade.com/

Wednesday, July 25, 2007

Kings of Leon

Suðurríkja rokk hljómsveitin Kings of Leon var stofnuð árið 2000 og saman stendur af 3 bræðrum og einum frænda þeirra. Nafnið er tilkomið vegna þess að pabba þeirra bræðra og afi hétu báðir Leon og voru þeir báðir prestar sem hafði mikil áhrif á tónlistarsköpun þeirra. árið 2003 gáfu þeir út plötuna 'Youth & Young Manhood' sem var tekið mjög vel, fólk talaði um að tónlistin væra blanda af suðurríkja rokki og strokes-legu indi rokki og hitaði KOL einmitt upp fyrir strokes um bandaríkin. KOL gáfu út sína aðra plötu 'Aha Shake Heartbreak' í lok árs 2004 og var henni mjög vel tekið, af flestum talin betri en fyrsta platan sem þótti tímamótaverk. Til gamans má geta að í The Mighty Boosh (Milky Joe þættinum) þá notar Vince Noir þessa plötu sem spegil og segir hana "a blinding album, much better than their first" og bætir við "they made it really quickly". Hratt og vel vinna þeir KOL svo sannarega því í byrjun árs 2007 gefa þeir út sína 3 plötu 'Because Of The Times' og sögðu hana reyndar hafa verið tilbúna ári áður og eru því í dag vel á veg komnir með 4 plötuna. Þetta eru allt frábærar plötur og þeir eru líka frábærir live, videoin hér að neðan eru flest live og get ég ekki beðið eftir að sjá þá félaga á Pukkel...

-On Call- af plötunni 'Because Of The Times'



-Razz- (Live @ T in the park) af plötunni 'Aha Shake Heartbreak'


-The Bucket- (live) af plötunni 'Aha Shake Heartbreak'


-California Waiting- (live) af plötunni 'Youth & Young Manhood'


-Molly's Chambers- af plötunni 'Youth & Young Manhood'

http://www.myspace.com/kingsofleon
http://kingsofleon.com/

Lo-Fi-Fnk

Sænsku party-pjakkarnir Leo "Olja" Drougge og August "Benni" Hellsing eru 22ára töffarar frá Stokkhólmi. Þeir gáfu út plötuna 'Boylife' árið 2006 og spila gleði electro pop sem aðeins ljóshærðir sænskir unglingar gætu samið....






http://www.myspace.com/lofifnksweden
http://www.lo-fi-fnk.com/

Monday, July 23, 2007

Arcade Fire


Arcade Fire Var stofnuð árið 2003 í Montreal Kanada af hjónunum Win Butler og Régine Chassagne. Arcade Fire gáfu sjálf út EP plötu árið 2003 sem hét ekki neitt en oftast kölluð ' Us Kids Know EP' og seldu þau hana á tónleikum. Hljómsveitin var þekkt fyrir að spila á mikin fjölda hljóðfæra og þótti frábær á tónleikum og var það einmitt þess vegna sem þau komust á samnig hjá Merge Records sama ár og bandið var stofnað. ári seinna gáfu þau út meistarastikkið 'Funeral' sem tekin var upp á viku í hótelherbergi í Montreal. Nafn plötunar er tilkomið vegna þess að nánast allir í hljómsveitinni misstu ástvini sama ár, og fjallar platan mikið um dauðann og söknuð, en samt á bjartsýnan hátt en ekki verið að hella sér alveg í þunglyndið. Platan vann til ýmisa verðlauna og var að marga mati plata ársins 2004 og reyndar 2005 líka þar sem hún kom út ári seinna í Bretlandi. Platan fór í gull bæði í Bretlandi og Kanada, seldist í rúmum 500.000 eintökum, sem þykir stórkostlegur árángur miðað við sjálfstætt plötuútgáfu fyrirtæki og lágmarks sjón- og útvarps kynningu. Uppselt var á alla tónleika hljómsveitarinnar í 'Funeral' túrnum og eftir hann voru þau fengin til að hita upp fyrir David Bowie og U2 og heimtuðu bæði Bono og Bowie að fá að syngja með þeim á tónleikunum enda telja þeir báðir Arcade Fire vera eina bestu hljómsveit í heiminum í dag.
Hljómsveitin gaf út sína aðra plötu 'Neon Bible' í mars 2007 og sló hún heldur betur í gengn um allan heim. Platan er hressari en 'Funeral' og aðgengilegri og sýnir það sig í sölutölum. Þrátt fyrir mikið úrval hljóðfæra á 'Funeral' þá eru mjörg ný á 'Neon Bible' sem setja sterkan svip á plötuna, svo sem orgel, hurdy gurdy, ungversk sinfoníuhljómsveit og kór kanadískra hermanna.
Þetta er alger Must See hljómsveit á Pukkelpop og þeir sem nenntu að lesa þetta allt í gegn fáið HÆ5 frá mér á tónleikunum!

- Rebellion (Lies)- af 'Funeral'


- No Cars Go- af 'Neon Bible'




http://www.myspace.com/arcadefireofficial
http://www.arcadefire.com/flash.html

Thursday, July 19, 2007

Tokyo Police Club

- Búnir að cancella sig á pukkel!!! -
Tokyo Polic Club er hljómsveit sem samanstendur af 4 strákum frá Kanada. Tónlist TPC er blanda af hráu indí rokki, post-punki og dettur jafnvel niðrí smá emo kafla en allt er þetta samt hratt og hresst hjá þessum strákum, t.d er bara eitt lag sem þeir hafa gefið út lengra en 3 mín og platan þeirra 'A Lesson In Crime' er aðeins 16min.

-Nature Of The Experiment-


-Cheer It On-

http://www.myspace.com/tokyopoliceclub

Pop Levi

Pop Levi er hress og kátur strákur frá Liverpool Englandi. Levi starfaði sem hármodel í mörg ár enda gífurlega töff strákur og er víst virkilega góður á sviði samkvæmt Sigga sem sá hann í Glasgow. Hann spilaði á bassa í Ladytron í nokkur ár en er nú kominn sóló. Hann blandar skemmtilega saman blues, pop, folk, glamrock, new wave og punki og er útkoman einhvernvegin svona....
-Pick Me Up Uppercut-


-Sugar Assault Me Now-

http://www.myspace.com/poplevi

Tuesday, July 17, 2007

Albert Hammond, Jr.


Albert er fæddur 9.apríl 1980 í Los Angeles, Kaliforníu. Þegar Albert var 13ára var hann sendur í fínan heimavistarskóla í Sviss þar sem hann kynntist honum Julian Casablancas. Albert og Julian hittust aftur árið 1998 í New York og stuttu eftir það stofnuðu þeir hljómsveitina The Strokes með þremur vinum hans Casablancas. Árið 2006 gaf Albert út sólóplötuna 'Yours To Keep' sem er kanski hægt að lýsa sem rólegri Strokes plötu, enda eru á þessari plötu lög sem Albert samdi fyrir Strokes en komust ekki á plötu.
-Everyone Gets A Star-


-Back To The 101-


http://www.myspace.com/alberthammondjr

Saturday, July 14, 2007

Spoon

Spoon er bandarísk indírokk hljómsveit frá Austin texas og hefur hún verið starfandi frá árinu 1994. Þrátt fyrir 13ára starfsaldur hefur Spoon aldrei slegið í gegn en dansað á frægðar línunni í nokkur ár. Spoon hefur gefið út 6 diska og sá þekktasti er 'Gimme Fiction' sem kom út árið 2005 og er alveg hreint frábær diskur sem ég var reyndar búinn að steingleyma áður en ég skrifaði þetta bull.
Diskurinn 'Ga Ga Ga Ga Ga' kom út núna 10 júlí og er bara nokkuð góður en við fyrstu hlustun ekki jafn góður 'Gimme Fiction' en ég get ekki skrifað neitt að viti þar sem ég hugsa bara um bjór akkurat núna, farinn að fá mér bjór!

'I Turn My Camera On' af disknum 'Gimme Fiction'

'The Underdog' af disknum 'Ga Ga Ga Ga Ga'


http://www.myspace.com/spoon

Friday, July 13, 2007

I'm From Barcelona


I´m From Barcelona er pop-band frá Jönköping, Svíþjóð, þekktust fyrir að hafa 24 hljómsveitarmeðlimi og skemmtilega blöndu hljóðfæra. Þó flestir í hljómsveitinni séu bakraddasöngvarar og hreinlega bara kór, þá er það hann Emanuel Lundgren sem stofnaði bandið, semur nánast allt og er aðal söngvari. Hljómsveitin gaf út sína fyrstu plötu árið 2006 og heitir hún 'Let Me Introduce My Friends' Lögin hér fyrir neðan eru öll af þessari plötu og í laginu 'This Boy' syngur hann 'Loney, Dear' sem einnig spilar á pukkelpop.

-this boy-


we´re from Barcelona-

-Treehouse- (live in london)

http://www.myspace.com/imfrombarcelona

Wednesday, July 11, 2007

Jack Penate


Jack Penate er breskur indí tónlistarmaður með hring í eyranu. Hann er hálfur breti og hálfur spánverji, fæddur árið 1984, og fyrir þá sem ekki vita þá er það hlaupaár!!!
hann spilar hresst pop/rokk með skemmtilegum ska áhrifum og er mikið hrósað fyrir hressa sviðsframkomu og mjög sérstakan dansstíl. Jack gaf út sína fyrstu 7" árið 2006 og aðeins 1000 eintök voru gerð, en hvert og eitt eintak innihélt polaroid mynd sem hann sjálfur tók. Í apríl á þessu ári gaf hann svo út EP plötuna 'Spit At Stars' og eru videoin tvö hér að neðan af þeirri plötu.

"Spit At Stars"

"Torn On The Platform"


http://www.myspace.com/jackpenate

Monday, July 9, 2007

MSTRKRFT


MSTRKRFT (lesist master kraft) var stofnuð árið 2005 af þeim Jesse F. Keeler (var annar tveggja meðlima í hljómsveitinni Death from Above 1979) og Al-P (sem prodúsaði plötuna 'You're a Woman, I'm a Machine' sem er fyrsta platan með Death from Above 1979)
En MSTRKRFT hefur remixað fjöldann allan af lögum eftir hina og þessa artista og hér fyrir neðan er master kraft remix af laginu 'sexy results' með Death from Above 1979, einnig eru 3 video af þeirra einu breiðskífu "The Looks" sem kom út á afmælisdaginn minn í fyrra...

-Sexy Results-


-Street Justice-


-Work on you-


-Easy Love-


http://www.myspace.com/MSTRKRFT

Saturday, July 7, 2007

SebastiAn

SebastiAn er franskur electro artisti sem er hjá hinu eiturhressa útgáfufyrirtæki Ed Banger Records...
Ég ætla ekki að skrifa mikið um SebastiAn enda ekki mikið að segja, gaf út sitt fyrsta lag 2005 og fyrir utan slatta af remixum þá hefur hann gefið út eina EP plötu ´Ross Ross Ross´ Þar að leiðandi verður þetta dj sett hjá kallinum á Pukkelpop en ég held að það verði samt sem áður mega hresst...

SebastiAn -Ross Ross Ross-


SebastiAn -Greel-


http://www.myspace.com/0sebastian0

Friday, July 6, 2007

Gogol Bordello


Gogol Bordello er Gypsy punk band frá Lower East Side í New York sem var stofnað var 1999. þetta er átta manna band en allir í bandinu eru innflytendur frá úkraínu og þaðan i kring. Ég heyrði fyrst af þessu bandi fyrir um 2árum en það er mikið talað um þetta band vegna gífurlega hressrar sviðsframkomu og auðvitað sérstæðrar tónlistar þeirra.
Ég ætla að tilenka þetta video henni Laufeyu og má hver fyrir sig reyna giska af hverju!

http://www.myspace.com/gogolbordello

Digitalism

Kebabétandi þjóðverjarnir í Digitalism eru tveggja manna electro band stofnað árið 2004. Þeir hafa verið mjög duglegir að remixa lög frá hinum og þessum og eru mörg lög sem þið dansið við um helgar þeirra remix. Þeir gáfu út sína fyrstu breiðskífu núna í júni, Idealism, sem kom út hjá hinu franska útgáfufyrirtæki kitsuné Music.







http://www.myspace.com/digitalism

Thursday, July 5, 2007

Silversun Pickups

Silversun Pickups er hljómsveit frá L.A. og er bara orðin nokkuð fræg þar á bæ. Platan þeirra Carnaval var valin plata ársins 2006 af mörgun alternative tónlistartímaritum í bandaríkjunum og hafa þau hitað upp fyrir mörg stór bönd þ.a.m. Foo Fighters og Snow Patrol. Lagið þeirra Lazy Eye hefur slegið í gegn um allan heim og var á toppi Xdomions listans í nokkrar vikur hér á landi.

http://www.myspace.com/silversunpickups

Wednesday, July 4, 2007

Matt and Kim

Image Hosted by ImageShack.us

Jæja þá eru það pizzuparty vinirnir Matt and Kim.
Matt and Kim er tveggja manna band frá Brooklyn New York, spila kanski ekki bestu tónlist í heimi en mjög hressa engu að síður, mig grunar að það væri mjög gaman að fara á tónleika með þeim á litlum sveittum stað, einsog sést á myndinni hér að neðan virðist allavegana vera gífurleg stemmnig hjá þeim enda lýsa þau tónleikunum sínum sem "an onstage pizza party"









http://www.myspace.com/mattandkim

Erol Alkan


Erol Alkan er electro dj/producer frá London , hann hefur remixað bönd á borð við Justice, Daft Punk, Mylo og margt fleira, hér að neðan má heyra Klaxons - Golden Skans (Erol Alkans remix) Erol var kosinn DJ ársins í bretlandi árið 2006 af mixmag og hann stjórnar klúbbnum "TRASH" í London og ég man ekki betur en eftir að ég labbaði þaðan út seinast hafi ég oftar en einu sinni og oftar en tvisvar heyrt fólk tala um besta djamm æfinnar!



http://www.myspace.com/erolalkan

Pukkelpop - Pukkelpop - Pukkelpop

Jæja krakkar mínir, ég get ekki sagt að ég hafi áhuga á bloggi en ég vildi bara gera þetta til að kynna ykkur og mér fyrir nokkrum hljómsveitum sem verða á pukkelpop...