Thursday, March 15, 2012

Hvenær förum við aftur?

Eða hvenær förum við bara e-t?

Thursday, April 3, 2008

La Paz - Bólivía

Planid var ad fara til Potosí frá Uyuni, en allar rúturnar voru fullar tannig ad vid ákáum ad fara bara til La Paz i stadinn. La Paz er algjorlega frábaer og jafnframt stórklikkud borg, tannig ad tad var ekki mikil sorg ad missa af Potosí. Mig langadi bara svo ad skoda námurnar tar, madur getur keypt dínamít og allt fyrir utan og svo bedid námugaurana ad sprengja tad fyrir mann. En madur verdur líka ad eiga eitthvad eftir fyir naesta skipti :)
Image Hosted by ImageShack.us

Tékkid a rafmagnslínunum
La Paz liggur í dal og naer langt uppí fjollin í kring, tannig ad hvert sem madur lítur eru hverfi, oll úr sama rauda múrsteininum, mjog flott. Tannig ad madur er í sífelldri fjallgongu, í hvorki meira né minna en 3660 metra haed yfir sjáfarmáli. Annars engin haedaveiki hér, bara fáránlega mód! Hittum aftur Svissnesku gaurana sem vid hittum í Soltu og drogum tá út ad borda og í bjór um kvoldid. Fyndnir gaejar.
Image Hosted by ImageShack.us

Turrkud llamafóstur! Madur á ad grafa tau undir husid sitt, s.s. tegar Bolivianar byggja sér hús tá grafa teir turrkad llamafóstur undir grunninn á húsinu. Haegt er ad fá fóstur frá 10 bólivíonum sem eru um tad bil 100 kr. Tví staerri, tví dýrari. Tordi ekki ad spurja hvernig teir ná í tau... úff. Tad eru gjeggjadir markadir i La Paz, myndin er tekin á Nornamarkadinum, náttúrulega! Tar er haegt ad fá allt mogulegt sem veitir goda heilsu, peninga, farsaelt ferdalag o.s.fr.

La Paz og Bolivia oll, med sinum hraedilegu rutum og lestum, indjanum og coca-laufum ut um allt og sidast en ekki sist fjollum, flokkast deffó sem ein af uppgotvunum ferdarinnar! Heldum ad vid myndum bara fara einu sinni til Bólivíu í lífinu... Ég er ekki svo viss lengur. Tetta land er hreinlega klikkad!

Uyuni - Bolivía!

Tad var magnad ad fara yfir landamaerin til Bolivíu, svoldid svona stemning tar sem malbikid haettir og madur finnur bokstaflega fátaektina i loftinu. Engir supermarkadir, og reyndar engir kaeliskapar ef eg hugsa um tad, indjánakonur út um allt, fáránlega flottar i tauinu og ávallt med born/farangur a bakinu.
Byrjudum a 10 tíma lestarferd til Uyuni. Verdur ad segjast ad tad var versta lestarferd allra tima. Tad var fullt i lestina en vid keyptum mida af einhverjum Ísraelum (sem ég held ad séu ad undirbúa heimsyfirrád, allavega eru teit utum allt, og med sin eigin hostel og sina eigin veitingastadi. Svona til ad hitta orugglega ekki neinn nema adra Ísraeli) og tad voru ódýrustu midarnir í bodi. Sem týddi ad tad var ekki mikid pláss i bodi og ekki haegt ad loka glugganum. Tar af leidandi vorum vid um tad bil rykugustu manneskjur i veroldinni og ad frjósa tegar lestinni hugnadist loksins ad komast a leidarenda 2 tímum á eftir áaetlun. Fyrstu fimm timarnir voru hinsvegar skemmtilegir, fullt af skrautlegum Bólivíonum med born og farangur audvitad!
Image Hosted by ImageShack.us

Salthopp!
I Uyuni skodudum vid heimsins staerstu saltflot. Otrulega magnad fyrirbaeri. Forum i 3 daga ferd og med okkur tveir hressir Ástralir, mogulega skemmtilegustu Astralir ferdarinnar og 3 litlar stelpur frá Týskalandi, líka hressar. Skodudum hveri og ég stakk mer út, sumum fannst of kalt úti ;) Sáum líka flamengoa, sem var frekar súrrealískt svona hátt uppi í vaegast sagt berangurslegum fjollum og hitastigid i kring um frostmark á nóttunni. Annars fannst okkur eiginlega skemmtilegast ad skoda litlu fjallabaeina sem vid stoppudum i a leidinni. Magnad ad bua í um 4500 metra haed i husum úr mold.

Skemmtileg ferd i flesta stadi. Mér telst reyndar til ad bilstjorinn hafi skipt 3 sinnum um dekk, baett vatni a svona 13 sinnum, einu sinni barid demparana a sinn stad aftur og einu sinni drapst a velinni af tvi ad áin sem vid vorum ad fara yfir var of djúp. Svo má heldur ekki gleyma tví tegar ein bensíntunnan datt af takinu á ferd og skoppadi um og kom sprunga i hana... Komumst samt alltaf á leidarenda á réttum tíma, tannig ad ég held ad tetta sé bara alltaf svona og sé reiknad inn i tímaáaetlunina.

Sunday, March 23, 2008

Salta

Dagur 1:
Sögdum tyngdarlögmálinu stríd á hendur og skelltum okkur í paragliding. Sem var aedi og í rauninni alls ekkert hraedilegt. Meira eins og ad tykjast vera fugl og svífa bara um... que lindo! Stefán var tótt ótrúlegt megi virdast hraeddari uppi í vitanum í Cabo Polonio. Ég lenti aftur á fjalltoppinum sem ég lagdi upp frá, eda var réttara sagt togud nidur úr loftinu af tveimur karlmonnum. Stefán lenti hinsvegar nidri í naesta fátaekrahverfi tar sem lítil born brutu saman fallhlífina hans eins og sannir fagmenn.
Kíktum svo adeins á barinn...
Dagur 2:
Ég litadi hárid á mér blátt. Stód ash-blond (eda réttara sagt "muy rubio ceniza") á pakkanum en kom út meira eins og ash-blue. En madur verdur ad vera alvöru töffari tegar madur fer í rafting, og hvad er meira töff en blátt hár?
Eyddum löööngum tíma á netinu og tad byrjadi ad rigna á medan. Nema rigning er eiginlega ekki rétta ordid. Tad myndadist fjót inni á internetkaffinu!
Fórum í BBQ á hostelinu um kvoldid og kynntumst undarlegu fólki, kemur á óvart! Eitt stykki Breti sem vatt sér inn í umraedurnar med sogu af tví tegar hann smygladi óvart kókaíni inn í Bólivíu. Hann var svo fullur tegar hann faldi tad ad hann fann tad ekki sjálfur.
Image Hosted by ImageShack.us

Gód med canoping hanskana

Dagur 3:
Rafting og canoping. Raftingid var fínt, leidsogumadurinn med oll grínin á hreinu og svona. Svo var BBQ í hádeginu (já, Argentinubúar eru frekar grillud tjód) og svo vír-rennerí eftir mat. Canoping felur í sér ad kraekja sig í vír sem er strengdur yfir dal. Tannig sikk-sakkar madur á milli fjalla a la Charlies Angels tangad til botni dalsins er nád. Ég veit ekki hver fékk tessa furdulegu hugmynd, ég meina tad er ekki eins og madur turfi ad maeta eins og skot til vinnu í naestu fjallshlíd! En mjog skemmtilegt engu ad sídur :)

Saturday, March 22, 2008

Tucumán - Tafí del Valle

Tucumán er frábaerlega subbuleg borg. Og yndislega lítid ad gera tar. Og aedislegt ad gera ekki neitt í risastórum gardi ekki langt frá midbaenum, sem er líka pínu subbulegur. Mér tókst reyndar ad klippa framan af annari stóru tánni minni, med ad reka hana í brotna hellu, med tilheyrandi blódi út um allt. Tad er afar ógedfellt ad ganga um í flip-flops med heitu klístri í... sérstaklega tegar madur veit ad tad er blód. Tarna er komid annad slasid mitt í tessari ferd. Hitt verandi ógnarstór marblettur sem hinsvegar er horfin og ég búin ad cancela umsókn mína vardandi póstnúmer fyrir hann.
Skruppum til Tafí del Valle, lítils fjallabaejar. Ferdin tangad er mjög gott daemi um tad ad tad er ekki alltaf áfangastadurinn sem skiptir mestu máli heldur ferdin tangad. Unadslega falleg leid upp skógi vaxin fjöll og tad sem jók enn meira á spennuna, tverhnípi nidur ödru megin og nokkurnveginn einbreidur vegur. Og beygjurnar, eda bugdurnar ekki beint hannadar fyrir rútubíla. Frekar taugatrekkjandi. Tafí sjálfur er hinsvegar í berangurslegum dal og kannski ekki sá líflegasti í álfunni. Vid fundum samt bar, og tar virtust vera samankomin öll staerstu skordýr baejarins med tilheyrandi látum!

Annars er tema vikunnar hundar sem "nebba" mann. S.s. koma aftan ad manni og manni alveg ad óvörum stinga blautu og köldu trýninu á bera fótleggi eda hvad sem er í bodi. Furdulega ótaegilegt.

ps. Hallgerdur skrifadi, efast um ad Stefán myndi nota svona vaemin lýsingarord ;) og broskalla.

Wednesday, March 19, 2008

Djammmynd frà BsAs

Marìus frà Noregi, Egill, Gummó sjóari og audvitad Stefàn à svolunum heima hjà Agli.

Image Hosted by ImageShack.us


Vard ad fà ad lauma inn einni djammmynd...

Monday, March 17, 2008

Cordoba - Jesus María - Villa Carlos Paz

Cordoba er furdulegur baer (1,3 millur samt) ad tvi leiti ad tar eru gjorsamlega ALLIR á aldrinum 16-26 ára. Cordoba er reyndar háskólabaer en tad naegir ekki einu sinni til ad útskýra öll tessi beib. Tví fólkid tar er líka allt gullfallegt, reyndar mér til mikillar maedu voru stelpunar mun fegurri en strákarnir. Vid höldum reyndar ad gamlingjar og born séu bonnud hérna med logum.

Frá Cordoba skelltum vid okkur í tvaer dagsferdir til tveggja yndislegra torpa. Já, Dögg, núna máttu segja ad vid séum eins og gomul hjón. Dagsferdir! Er til eitthvad plebbalegra en tad? Allavega tà fòrum vid til Jesus Maria til ad skoda einhverjar Jesùtìtaleifar (adallega til ad komast ad tvì hverjir tad voru eiginlega). Daginn eftir skelltum vid okkur til Carlos Paz, sem af lysingunum ad daema àtti ad vera einhverskonar mini-Las Vegas. Casino og pyramidahòtel. Jà svosum smà, en miklu meira bara fràbaerlega krúttlegur baer og allir í lautarferd vid vatnid og voda hamingjusamir med bornunum sìnum. Vid gerdum bara eins og hinir..."when in Carlos Paz". Hittum reyndar vidbjòdslegan hund, eda rèttara sagt hund med vidbjòdslegt sàr sem vildi òlmur vera vinur okkar. Og jà, tad eru alltaf hundar af ollum staerdum og gerdum allstadar og enginn af teim veit hvad "òl" er.

Kynningarefni fyrir leikrit sem er verid ad syna i Carlos Paz. Kannski smà mini-Las Vegas fílingur.
Komst svo ad tví á msn í gaer ad Carlos Paz er heimabaer Sergios hennar Unnar. Audvitad var hùn bùin ad segja mèr ad tékka à tessum bae, en minns löngu búinn ad gleyma. Allavega skemmtilegur stadur og ég skil nùna afhverju Camille var ad hanga tar ;) Vid daudsàum eftir ad eiga rùtudeit um kvöldid.

Èg veit ekki hvad hefur ordid um alla tùristana en vid erum nùna alltaf ì herbergi med lodnum hrjòtandi heimamönnum. Eyrnatappar!!!

ps. Nyjar myndir komnar à www.resdagboken.se

Buenos Aires

Fra Uruguay forum vid aftur til Buenos Aires. I tetta skiptid tokum vid ekki stora ferju sem er klukkutima a leidinni heldur akvadum vid ad taka rutu i 2 tima til ad taka bat i 3 tima!!! en vid frettum ad tetta vaeri falleg leid og tetta var odyrara. Tegar vid komum ad batnum var tetta einskonar straetobatur, t.e.a.s. hann var a staerd vid straeto og var meira segja med straeto saetum! En ja, vid komum til Buanos Aires um kvold og gerdum ekkert vegna treytu. Daginn eftir skodudum vid adal party kirkjugardinn i Buanos Aires sem er bara med grafhysum og er t.d Evita og familia i einu teirra, mjog flott allt saman. Image Hosted by ImageShack.us

Hun Isabella, Belgiska stelpan, elti okkur sem sagt ennta og vorum vid ordin mjog pirrud a henni en vid sluppum vid hana um kvoldid tar sem vid vorum ad fara djamma med Gumma og Agli. Hun drekkur ekki og tar sem islenski sjomadurinn Gummi, sem drekkur bara eda bordar, aldrei baedi a sama degi, neitar ad sita a sama bordi og folk sem drekkur ekki gat hun hreinlega ekki komid med. Vid Hallgerdur forum sem sagt heim til Egils og drukkum okkur vitlaus og sidan forum vid fjogur og norskur vinur teirra a drum and bass klubb og var djammad fram eftir ollu. Tad er kanski otarfi ad minnast a tad en audvitad aeldi eg daginn eftir og fekk blodnasir i kaupbaeti. Um kvoldid forum vid a tango-show sem byrjadi sem lelegt leikrit en endadi bara mjog vel, einn bjor og beint i rummid. a tridja degi gerdum vid bara allt turista dot sem vid attum eftir tar sem tetta var sidasti dagurinn okkar i Buenos Aires.

Friday, March 14, 2008

Cabo Polonio (Uruguay)

Med tví ad skýra bloggid tetta er ég (Hallgerdur) ad fara á bak orda minna um ad segja engum frá tessum stad. Hann er tad frábaer. En ég efast um ad margir sem lesa tetta eigi eftir ad leggja leid sína til Uruguay hvort ed er... og teir sem nenna alla leid tangad eiga fyllilega skilid ad vita af tessum stad. Tetta er líka svona baer sem madur rekst ekkert á, heldur fréttir af frá ödrum ferdalöngum.

Húsid okkar, dooooo
Image Hosted by ImageShack.us


Cabo Polonio er eiginlega frekar eins og eydimörk med Atlantshafi en strandbaer. Fáránlega fallegur stadur. Vid höfdum ekki hugmynd um tad, bjuggumst bara vid einhverjum skítabae af tví ad eina sem vid vissum var ad tad vaeri ekki rafmagn tar. Baeinn einkenna sandöldur sem faerast til í takt vid vindinn. Og vid tessar sandöldur stendur lítid torp. Tar mega engir bílar koma, madur verdur ad kaupa far med sérstökum safaríbílum til ad komast inn í torpid, og langflest húsin hafa hvorki rafmagn né rennandi vatn. Vid rákumst á tvö gistiheimili og hostel en flestir virdast leigja sér hús. Vid maelum med ad skoda fyrst og leigja svo, kostirnir eru mjög svo misógedslegir. Vid endudum fimm manns í húsi fyrir ca. 3 til ad fordast froska, myglu og fýlu! Mjög krúttlegt, alveg vid ströndina, med okkar eigin brunni og hengirúmi og allt. Mér fannst ég mjög húsfreyjuleg ad ná í vatn í brunninn til ad vaska upp.

Minns vid brunninn
Image Hosted by ImageShack.us


Tad var enntá minna ad hafa fyrir stafni í tessum bae en í hinum strandbaenum. Stefán hertók hengirúmid sem hékk í skugga á stéttinni f. framan húsid okkar tar sem hann var enntá skaerbleikur. Á medan lúlludum vid hin á ströndinni, milli tess sem blautir hundar komu ad vekja okkur med blautum kossum (guacala!). Vid gerdum reyndar tad eina sem haegt var "ad gera" í Cabo en tad var ad fara upp í vitann og njóta útsýnisins úr sjálfsmordsháum turninum. Og vid bordudum líka á öllum veitingastödunum í baenum nema einum á tveimur dögum!

Punta del Diablo (Uruguay)

Framhald..
Allt er gott sem endar vel og vorum skutlinu fegin. En vid áttum okkur samt fjótt á tví ad tad verdur ekki vinnandi vegur ad finna eitt einasta hostel í tessum bae í nidamyrkri tar sem baejarstjórnin er greinilega ekkert ad brudla í hluti eins og ljósastaura. Endum á tví ad heilsa upp á tvaer pìur sem voru greinilega útlendingar og taer fylgja okkur á aaaadal partý-hostelid í baenum.

Image Hosted by ImageShack.us


Punta del Diablo var allt sem Punta del Este (wannabe Miami) var ekki. Ekki ein malbikud gata og fullt af hundum, hippum og börum vid ströndina. S.s. ekkert ad gera tarna nema fara á ströndina, lesa og drekka bjór. Nema vesalings Stefáni tókst ad brenna til helvítis í tynnkunni í Punta del Este og gat eiginlega ekki verid utandyra! Svo var mjog skemmtilegt móment tegar vid spurdum um naesta hradbanka og fengum tad svar ad tad vaeru tveir í naesta bae! En ekki einn einasti í innan vid klukkutíma rútuferd!
Svo var líka tekid létt djamm og kíkt (ég, ekki Stefán) á aaaaadal barinn í baenum sem var upplýstur med einu graenu ljósi og svo var reyndar vardeldur fyrir utan. Tar hitti ég fullt af hundum og nokkra Uruguaya og laerdi uruguaeskan framburd og smá slangur. Che Guacho!
Tetta sama kvold hittum vid líka nokkra vitleysinga (Leon frá Týskalandi, Gary frá BNA og Isabel frá Belgíu) sem ákvádu ad skella sér med okkur til Cabo Polonio morguninn eftir.

Friday, March 7, 2008

Uruguay

Jaeja, fra Montevideo forum vid til Punta del este, sem er strandbaer fyrir rika og fina folkid. Tad bua 10.000 manns i tessum bae en fra lok desember og framm i midjan januar bua rumlega ein milljon manns tar. Tannig ad nuna tar sem vid erum a low-season eru bara 10.000 manns herna en ogedslega mikid ad tomum ibudum og hotelum, vaentanlega vantar um tad bil 990.000 ibua til ad fylla allt husnaedi herna tannig ad tetta var mjog mikid Palli var einn i heiminum stemmning, allt ykt fint, bannad ad labba a grasinu og enginn a ferli. En audvitad gatum vid samt fundid nokkra bakpokaferdalanga og farid a fylleri. Daginn eftir voknudum vid thunn og forum i solbad, nema hvad ad eg (Stefan) var adeins thunnari en Hallgerdur og gleymdi ad setja a mig solaraburd svo eg brann i drasl! Tadan var forinni heitid i 700 manna strandbae med vidakofum og moldargotum, algerlega andstaedan vid Punta del Este. Tetta er tad spes baer ad vid gatum ekki einu sinni tekid rutu alla leid, thurftum ad labba fra thjodveginum 5km ad baenum, sem okkur fanst ekkert mal adur en vid logdum ad stad. En rutan var lengur a leidinni en hun atti ad vera svo tegar okkur var hennt ut ur henni var komid kvold og alveg ad verda dimmt. Litid ad gera en bara gefa i og reyna labba 5km adur en tad vard alveg dimmt tar sem tad voru engir ljosastaurar a tessum moldarvegi. Lobbudum 2km adur en tad vard dimmt tannig ad vid hukkudum okkur far hja eina bilnum sem keyrdi tessa blessudu gotu og tad gekk, skelltum okkur aftan a pallinn a gomlum pallbil og brunudum i baeinn.

Uruguay

Tennan morgunin vorum vid ekki of thunn eda full til ad koma okkur til Urugauay. Tokum batinn yfir til Colonia sem er elsti baerinn i Urugauay og er hann A UNESCO World Heritage Site ekki osvipadur Paraty i Braseliu sem vid erum buin ad blogga um eini munurinn er ad vid vorum a low season svo tad var enginn i baenum. Ekki haegt ad blogga mikid um tennan stad, gerdum litid annad en ad rollta eda hjola um og skoda tennan fallega bae, mjog rolegur, engin gotuljos, ekkert stress.
Fra Colonia forum vid i rutu til Montevideo sem er hofudborg Uruguay en eg veit ekki alveg hvad eg a ad segja um tann bae, vid vorum bara eina nott tar einsog i Colonia og tad var rigning og vindur allan timan sem vid vorum tar svo vid skodudum borgina ekkert serstaklega vel.

Buenos Aires

Fra fossunum henntum vid okkur uppi rutu til Buenos Aires, ekki nema 18timar rutuferd tangad en vid erum ordin mjog mjog von tvi ad vera i rutum nuna sem er fint tar sem mer finnst 12tima flug til thailands vera ordid grin nuna. Fundum okkur Hostel, henntum af okkur toskunum og forum ad skoda Buenos Aires. Daginn eftir heldum vid afram ad skoda borgina og er hun mjog hress, Hallgerdur sagdi ad hun vaeri einsog skitug paris, eg hef ekki komid til parisar svo eg verd bara ad trua henni. Um kvoldid forum vid ut ad borda a mjog finum veitingarstad og fengum okkur guddomlegt nautakjot og vin med og borgudum minna en fyrir hambo og kok heima...
Sidan var farid ad djamma, forum med hop af krokkum af hostelinu a risastoran klubb og tar var drukkid og dansad til kl 8 um morguninn sem var kanski ekki tad gafulegasta i heimi tar sem vid turftum ad tjekka okkur ut af hostelinu fyrir kl 11 tann morguninn.
Voknum eftir 2 tima svefn, eg fer og aeli i vaskinn, pakka nidur og staulumst ut. Vid aetludum sem sagt ad fara til Uruguay en eg var svo thunnur ad eg gat tad bara ekki, fundum annad hostel og eg for ad sofa en Hallgerdur aetladi ut ad kaupa ser e-d ad borda og fara svo ad sofa. Nokkrum timum seinna er pikkad i mig og tad stendur madur vid rummid mitt, eg skil ekkert i tvi hver er ad pikka i mig og hef aldrei sed tennan mann adur, tek ur mer eyrnatappana og ta heyri eg hann tala, "Heyrdu stebbi minn, viltu ekki vakna og fa ter bjor" er sagt vid mig a islensku, eg skil ekkert hvad er i gangi og held eiginlega bara ad mig se ad dreyma en svo kemur Hallgerdur og Islendingurinn sem vid hittum i Braseliu skellihlaegjandi inni herbergid, ta hafdi Hallgerdur fyrir tilviljun hitt Gumma og vin hans sem byr i Argentinu uta gotu og tau fengid ser bjor og hangid saman allan daginn. Eg gat natturulega ekki annad en farid a faetur og fengid mer bjor, fyrsti var vondur en svo kom tetta og duttum aftur i tad!

Wednesday, March 5, 2008

Puerto Iguazù



Tìmi til kominn ad blogga um tennan bae. Tad bùa 32.000 manns ì Puerto Iguazù og baerinn samanstendur adallega af raudri mold og... Hmmm? Jaeja Stefàn fèkk Argentíska nautasteik og var mjög hamingjusamur og èg fèkk pasta sem var bragd af og var bara frekar glöd.
En fossarnir voru geveikir Argentínumegin. Brjàladur kraftur og èg er ekki frà tvì ad vid höfum flissad nokkud mikid. Neikvaedu jònirnar sem myndast vid fossa og eiga skv. àkvednum kenningum ad gera mann gladari eiga vìst ad vera sèrstaklega àhrifamiklar vid Garganta del Diablo (tar sem myndin er tekin). Held ad tad sjàist nù bara best à myndunum hvad vid erum glöd, tràtt fyrir gìfurlega rigningu! Reyndar er rigning nokkud sem er löngu haett ad koma okkur à òvart...

Ps. Myndir komnar inn à resdagboken.se! Hallgerdarmegin.

Wednesday, February 27, 2008

Foz do Iguazú

Iguazù-fossarnir Brasilíumegin

Image Hosted by ImageShack.us


Eins og gömul hjón hvad?
Tékkudum á tessum bjáludu fossum tveggja megin landamaeranna (nenntum ekki til Paragvae), s.s. Brasilíumegin og Argentínumegin. Gerdum ekkert annad Brasilíumegin nema kynnast Enskri stelpu sem fékk bestu picköp línu aldarinnar á hostelinu okkar: "You, me, Sexy time?".
Foz hefur sem sagt afar lítinn sjarma. Reynar pínu fyndid ad sjá allstadar skilti um ad Paragvae sé í tessa átt og Brasilía í hina og ad tad sé bara hálftími í straetó yfir landamaerinn. Einn strákur á hostelinu okkar fór meira ad segja óvart til Argentínu!
Argentínumegin faer svo sér blogg med sér mynd.

Bonito



Eftir Pantanal var ferdinni heitid til Bonito. VID STEFÄN (happy?) gistum á frábaeru hosteli bed bestu hamborgurunum í baenum ooooog snorkludum nidur ána Rio do Prata. Skyggni 100% og fullt af fiskum, sumir risastórir og illilegir (dourados á portúgölsku). Gátum ekki tekid myndir tar sem engar vatnsheldar myndavélar er ad finna í Bonito (gaeti verid snidug viskiptahugmynd). Fyrir utan ad hafa aldrei snorklad í ferskvatni ádur tá var líka mjög svalt ad turfa ekkert ad synda af tví ad vid flutum bara nidur ána. Líka gedveikt ad vera í einskonar fiskabúrsveröld og svo reka hausinn uppúr vatninu og tar er allt graent og fuglasöngur í gangi.



Kynntumst líka Kim frá Hollandi en hún og Stefán áttu tad sameiginlegt ad láta fólk almennt fara mjööög mikid í taugarnar á sér. Og ég fékk ad hlaeja ad teim "bitcha" um allt og alla. Mjög ánaegjulegt. Vid erum s.s. búin ad hitta gífurlega mikid af asnalegu og pirrandi fólki sem Stefán haaaaatar... En vid erum samt sem ádur búin ad hitta miklu meira af skemmtilegu og frábaeru fólki. Í raun ótrúlegt hvad vid erum búin ad kynnast mörgum... Sem vid munum aldrei hitta aftur í lífinu, eda kannski bara í naesta bae.
Seinni daginn okkar í Bonito vöknudum vid, bordudum morgunmat, forum svo í apótekid, svo í súpermarkadinn. Eyddum svo klukkutíma eda svo á internetinu (enda loksins komin í samband vid umheiminn), röltum svo aftur upp á hostel og ég (Hallgerdur) for í sturtu og tvodi öll fötin mín í höndunum á medan Stefán las bók og lagdi sig. Svo kom kólibrífugl og vid virtum hann fyrir okkur matast um nokkra stund. Svo spiludum vid í klukkutíma og tá var klukkan ordin hálf 1! Tannig ad vid pöntudum bjór og hambó. Og fyrst okkur hafdi tekist ad afreka svona miklu á einum morgni (auk tess sem ekki mikid annad var haegt ad gera tarna) spiludum vid og drukkum bjor tad sem eftir lifdi dags. Gódur dagur.
Yfir og út.

ps. Tad eru komnar nýjar myndir inn á www.resdagboken.se, alias: hallgerdur.

Tuesday, February 26, 2008

comment

allir ad commenta annars haettum vid ad blogga, breyttum kerfinu svo nuna geta allir commentad...

Sunday, February 24, 2008

Pantanal

Pantanal er risastort votlendi inni landi og eru skrád tar til heimilis ýmsar áhugaverdar og óáhugaverdar dýrategundir.
Vid vorum s.s. keyrd fra Campo Grande ad á tar sem sidasti spolurinn var farinn a litlum bát, ad vid héldum vegna tess ad ekki vaeri haegt ad keyra ad "hotelinu". Vid komumst sidar ad tvi ad tad var vel haegt ad keyra tangad, en "hotelid" var orstutt fra naestu bensinstod og supermarkadi! Tannig ad vid heldum bara ad vid vaerum uti i rassgati en vorum i raun bara komin halfa leid tangad. Og svo kom einnig i ljós ad helmingurinn af "the activities" sem voru partur af prógramminu áttu sér stad svo nálaegt "hotelinu" ad vid turftum varla ad standa upp. T.d. ad veida piranha-fiska en tad atti ser stad a tuninu fyrir framan og naetur-gongutúrinn var farinn a pallinum fyrir framan herbergin okkar. Trátt fyrir ákvedin vonbrigdi tá verdum vid ad vidurkenna ad tad er samt sem adur frekar fyndid ad hafa verid ad skoda krokodíla og veida piranha-fiska i sama vatni og vid syntum í. Tannig ad vid turfum ekki ad lesa kaflann "How to cross an piranha infested river" í Worst Case Scenario Handbook; Travel.
Og í tessu sama vatni synti med okkur capybara, eda staersta nagdýr í heimi. (http://en.wikipedia.org/wiki/Capybara). Vaegast sagt undarleg skepna. Reyndar var tetta ákvdna capybara einskonar heimalingur, en hann heldur víst ad hann sé hundur. Sem er kannski ekkert skrýtid tar sem tad var ekki einn einasti spegill á svaedinu!
En nu tegar ég hugsa til baka var i raun mjog gaman. Sáum fullt af opum, krokodilum, einhverskonar tvottabirni, tarantulu, Bamba, beltisdýr, froska, otur, risastóra páfagauka og audvitad fullt af odrum fuglum sem hinum turistunum fannst voda merkilegir :)
Svo hittum vid líka allskonar mannfólk. Rákumst á eitt stykki íslenskan sjóara í matsalnum, hann Gudmund. Og kynntumst mjog hressum ofurnõrdum fra Hollandi (reyndar var einn í raun frá Svartfjallalandi, sem minnir mig á hina frábaeru mynd Mr. Montenegro). Med tessum yndislegu náungum ásamt fólki frá svítjód og ástralíu sõtrudum vid ófá bjórana og spiludum gúrku. Svo má heldur ekki gleyma the lunar eclypse (sem eg get ekki munad hvad er a íslensku, anyone?) en eins og nõrdarnir fraeddu okkur um tá er tad tegar jõrdin fer akkúrat á milli tunglsins og sólarinnar og varpar tannig skugga á tunglid. En tad vard samt alls ekki alveg svart heldur dokkappelsínugult.
Ok, Bonito faer svo sér blogg...

Sunday, February 17, 2008

Campo Grande

Logdum loksins af stad i langtrad 15 tima rutuferdalag upp i sveit i gaer. Var reyndar alls ekki eins slaemt og vid heldum og vid lifdum kukafyluna af (fengum saeti vid hlidina a klosettinu). Erum s.s. nuna i Campo Grande sem er ekki ooof langt fra Pantanal-tjodgardinum. A mogun leggjum vid i hann tangad en vid fengum ad vita adan ad vid eigum vist ennta 5 tima eftir i rutu tangad! Tar eigum vid ad fa ad sja allskyns fugla, fiska og dyr. Vitum ekki alveg enn vid hverju er ad buast en tad kemur alltsaman i ljos...Eins og allt i tessu ferdalagi. Held ad vid hofum aldrei adur planad svona langt fram i timann en verdum i tessari "safari"-ferd naestu 4 daga og forum svo til baejar sem heitir Bonito og aetlum ad snorkla tar nidur ána Rio do Prata. Tad a vist ad vera frabaert. Tannig ad vid vitum hvar vid sofum naestu 6 naetur!
Tolvusambandid er abyggilega ekki frabert i tjodgardinum tannig ad vid latum heyra i okkur (og hendum inn myndum) eftir tad aevintyri.
Ciao ciao!

p.s. Erum ad flagna eins og holdsveik born!

Saturday, February 16, 2008

Sao Paulo

nuna sit eg thunnur, mjog tunnur, vid tolvu i verslunarmidstod i Sao Paulo og aetla ad reyna segja fra sidustu 3 dogum her i sao, en efast um ad tetta verdi skemmtilestur vegna adur nefndrar thynnku, reynum samt.
Vid aetludum ad taka rutu kl 9 um morgun fra Paraty til Sao Paulo en audvitad var uppsellt i hana svo vid endudum a tvi ad taka rutu e-d annad og skipta um rutu og bla bla bla og komum ekki fyrr en um midnaetti a hostelid okkar. vid vorum 3 naetur i sao og i raun ekki margt sem vid gerdum, risa risa risa stor borg med lelegum almenningssamgongum tannig ad tad tok heilan dag ad fara a eitt safn t.d. Tad bua 29milljonir i sao paulo og er tetta naest staersta borg i heimi. en ja vid skodudum borgina, fengum okkur sushi i japanska hverfinu (i Sao Paulo er staersta samfelag Japana fyrir utan Japan).

Eftir 2 daga fottudum vid ad tad er ekkert skemmtilegt ad gera tarna nema djamma svo vid gerdum tad. Byrjudum kvoldid a ad fa okkur kokteil a efstu haed i haesta husi sudur ameriku og nutum utsynisins. Tokum svo straeto tvi leigubilar eru ogedslega dyrir, og vid vorum ekki buin ad fara i hradbanka. Hoppudum ur straeto eins nalaegt stadnum og vid gatum en i tessari risa borg var tad samt svona halftima labb. Byrjudum a tvi ad redda okkur pening tvi vid vorum samanlagt ekki einu sinni med nog i straeto heim. en tetta var ekki eins audvelt og vid heldum, hradbankar loka nefninlega kl 22 a kvoldin. Tarna stodum vid, pinu drukkin, peningalaus, snjo hvit, i midju idnadar/fataekrarhverfi og vissum ekkert hvad vid attum ad gera. eftir halftima labb i tessu vafasama hverfi fundum vid T.G.I.Friday´s teir taka kort! svo audvitad skelltum vid okkur tangad i bjor til ad drekkja sorgum okkar. En thjonninn tar hjalpadi okkur og sagdi ad tad vaeru 24tima hradbankar a bensinstodvum ta pontudum vid okkur bara annan bjor tvi tad var bensinstod beint fyrir utan. En audvitad var enginn hradbanki tar og ta vorum vid aftur jafn illa stodd nema bara fullari. En vid fottudum tad snjallraedi ad hoppa bara inni leigubil og lata hann keyra okkur i hradbanka og svo a klubbin sem vid vorum buin ad vera ad reyna fara a sidustu klukkutimana. Tegar tangad var komid turftum vid ad nota KB takta til ad komast inn fram hja 3 risa storum dyravordum og konum med gestalista. Tegar inn var komid var okkur tjad ad tad kostadi okkur bara ad koma inn a stadinn tad sama og vid borgudum fyrir gistingu sidustu 3 naetur. Eftir allt vesenid fyrr um kvoldid og hversu aulalegt tad hefdi verid alla labba ut nuna bitum vid i kinnina og kyldum a tetta. Tetta var mjog flottur stadur en fullur af mjog fallegum og rikum krokkum med visakort fra pabba gamla. Fengum sma sjokk tegar vid attudum okkur a tvi ad vid vorum i sama landi og tegar vid vorum ad djamma med krokkum i engum skom i favellunum en fataeku krakkarnir skemmtu ser samt miklu betur og tad gerdum vid lika. Tegar vid forum af disco og tad var komid ad tvi ad borga herlegheitin virkudu kortin okkar ekki, eg hafdi bara nad sma pening utur hradbankanum sem klaradist i sigo og leigubil. Eg veifadi gullkortinu minu i allar attir og sagdist eiga fullt af peninig, tad virkadi, managerinn kom og sagdi ad tetta vaeri "on the house" svo vid lobbudum ut an tess ad borga kronu og splaestum i leigubil heim.