Sunday, February 10, 2008

Ríó dagar 2-7

Ok, bara fimm dagar síðan við bloguðum síðast en síðan þá er búið að...
Keyra á Stefán (ekkert alvarlegt, reyndar var bíllinn frekar illa farinn)
Heilsa upp á krist, sem við sjáum reyndar annars út um svefnherbergisgluggana okkar (já erum með sitthvort herbergið og sitthvort baðherbergið).
Fara í aaaaaaðal partýhverfið í Ríó. Djamm og drykkir úti á götu og við lærðum að syngja Flamengo lagið. Fórum svo á að sjá Flamengo vs. Fluminense á Maracaná leikvanginum en því miður töpuðu okkar menn eftir að tvísýnt var um hvort leiknum yrði frestað vegna veðurs. Sátum og stiknuðum í fyrri hálfleik en svo komu allt í einu brjálaðar þrumur og eldingar og grenjandi rigning. En sem hendi væri veifað stytti upp en mörkunum ringdi hinsvegar inn.
Tékkuðum líka á strandarlífinu á Copacabana sem er sér í lagi fjörugt þar sem það er reynt að selja manni allt frá grilluðum osti til G-strengja (auðvitað!!!!)
Borða og drekka endalaust af bragðlausum veitingum... Hittum hressar flugfreyjur sem voru mjög áhugasamar um kynhneigð okkar því við vorum óvart á aðal hommagötunni í ríó og þurftum við Christopher að þykjast vera hommar til að sleppa við mesta káf í heimi, var reyndar mjög fyndið, löbbuðum inn götu sem var stöppuð af fólki en smám saman tókum við eftir því að það voru bara karlmenn og þeir voru allir í sleik, mjög hresst allt saman. Við erum mjög þreytt núna og okkur dettur ekkert meira sniðugt í hug að segja frá, nema kanski hvað þetta er búið að vera frábær ferð hingað til, ekkert vesen, enginn niðurgangur, frábær aðstaða hjá Hannesi, erum t.d nuna að þvo fötin okkar hjá honum og blogga í tölvunni hans, mjög þæginlegt, en á morgun ætlum við að taka rútu til Sao Palo og þá fyrst byrjar bakpokaferðalagið okkar, við erum búin að hafa það of gott herna í ríó!

1 comment:

Unknown said...

Gaman að fá blogg fréttir, endilega veriði dugleg að blogga svo maður geti fylgst með ykkur. Eins að setja inn myndir. kv. Nonni