Thursday, August 2, 2007

LCD Soundsystem


James Murphy er heilinn á bakvið LCD Soundsystem og annar stofnandi dans-punk plötuútgáfunar DFA Records. Þó svo að Murphy semji allt þá er Þetta fimm manna band á tónleikum með frábærum hljóðfæraleikurum einsog t.d. Tyler Pope bassaleikara !!! og Al Doyle gítarleikara Hot Chip en hann er þekktur fyrir að geta spilað á gjörsamlega öll hljóðfæri sem hann snertir. LCD var stofnuð árið 2002 en gaf út sinn fyrsta disk árið 2005 og hét hann einfaldlega LCD Soundsystem. Þessari plötu var mjög vel tekið og var meðal annars tilnefnd til tveggja Grammy verðlauna. LCD Soundsystem gaf út plötuna 'Sound of Silver' í mars 2007 og er hún einnig mjög góð þó svo hún að mínu mati nái engan vegin sömu hæðum og fyrri diskurinn. mig hefur lengi langað að sjá þá á tónleikum og ætla ég mér að vera fremstur á pukkel...

-Tribulations-


-Viðtal við James Murphy-


http://www.myspace.com/lcdsoundsystem
http://www.lcdsoundsystem.com/

2 comments:

Unknown said...

Heyrðu ég er orðin svo spoiled af þér, að mig langar í pukkelpopplaylista í tölvuna mína takk. Ég er svo einmana hérna heima að teikna. Ég er búin að spæna upp þennan DJ DJ DJ DJ lista.

Árni Theodór Long said...

Það verður örugglega leiðinlegt þarna..... Og rigning....... Og fólk með klamidíu.