Thursday, April 3, 2008

La Paz - Bólivía

Planid var ad fara til Potosí frá Uyuni, en allar rúturnar voru fullar tannig ad vid ákáum ad fara bara til La Paz i stadinn. La Paz er algjorlega frábaer og jafnframt stórklikkud borg, tannig ad tad var ekki mikil sorg ad missa af Potosí. Mig langadi bara svo ad skoda námurnar tar, madur getur keypt dínamít og allt fyrir utan og svo bedid námugaurana ad sprengja tad fyrir mann. En madur verdur líka ad eiga eitthvad eftir fyir naesta skipti :)
Image Hosted by ImageShack.us

Tékkid a rafmagnslínunum
La Paz liggur í dal og naer langt uppí fjollin í kring, tannig ad hvert sem madur lítur eru hverfi, oll úr sama rauda múrsteininum, mjog flott. Tannig ad madur er í sífelldri fjallgongu, í hvorki meira né minna en 3660 metra haed yfir sjáfarmáli. Annars engin haedaveiki hér, bara fáránlega mód! Hittum aftur Svissnesku gaurana sem vid hittum í Soltu og drogum tá út ad borda og í bjór um kvoldid. Fyndnir gaejar.
Image Hosted by ImageShack.us

Turrkud llamafóstur! Madur á ad grafa tau undir husid sitt, s.s. tegar Bolivianar byggja sér hús tá grafa teir turrkad llamafóstur undir grunninn á húsinu. Haegt er ad fá fóstur frá 10 bólivíonum sem eru um tad bil 100 kr. Tví staerri, tví dýrari. Tordi ekki ad spurja hvernig teir ná í tau... úff. Tad eru gjeggjadir markadir i La Paz, myndin er tekin á Nornamarkadinum, náttúrulega! Tar er haegt ad fá allt mogulegt sem veitir goda heilsu, peninga, farsaelt ferdalag o.s.fr.

La Paz og Bolivia oll, med sinum hraedilegu rutum og lestum, indjanum og coca-laufum ut um allt og sidast en ekki sist fjollum, flokkast deffó sem ein af uppgotvunum ferdarinnar! Heldum ad vid myndum bara fara einu sinni til Bólivíu í lífinu... Ég er ekki svo viss lengur. Tetta land er hreinlega klikkad!

Uyuni - Bolivía!

Tad var magnad ad fara yfir landamaerin til Bolivíu, svoldid svona stemning tar sem malbikid haettir og madur finnur bokstaflega fátaektina i loftinu. Engir supermarkadir, og reyndar engir kaeliskapar ef eg hugsa um tad, indjánakonur út um allt, fáránlega flottar i tauinu og ávallt med born/farangur a bakinu.
Byrjudum a 10 tíma lestarferd til Uyuni. Verdur ad segjast ad tad var versta lestarferd allra tima. Tad var fullt i lestina en vid keyptum mida af einhverjum Ísraelum (sem ég held ad séu ad undirbúa heimsyfirrád, allavega eru teit utum allt, og med sin eigin hostel og sina eigin veitingastadi. Svona til ad hitta orugglega ekki neinn nema adra Ísraeli) og tad voru ódýrustu midarnir í bodi. Sem týddi ad tad var ekki mikid pláss i bodi og ekki haegt ad loka glugganum. Tar af leidandi vorum vid um tad bil rykugustu manneskjur i veroldinni og ad frjósa tegar lestinni hugnadist loksins ad komast a leidarenda 2 tímum á eftir áaetlun. Fyrstu fimm timarnir voru hinsvegar skemmtilegir, fullt af skrautlegum Bólivíonum med born og farangur audvitad!
Image Hosted by ImageShack.us

Salthopp!
I Uyuni skodudum vid heimsins staerstu saltflot. Otrulega magnad fyrirbaeri. Forum i 3 daga ferd og med okkur tveir hressir Ástralir, mogulega skemmtilegustu Astralir ferdarinnar og 3 litlar stelpur frá Týskalandi, líka hressar. Skodudum hveri og ég stakk mer út, sumum fannst of kalt úti ;) Sáum líka flamengoa, sem var frekar súrrealískt svona hátt uppi í vaegast sagt berangurslegum fjollum og hitastigid i kring um frostmark á nóttunni. Annars fannst okkur eiginlega skemmtilegast ad skoda litlu fjallabaeina sem vid stoppudum i a leidinni. Magnad ad bua í um 4500 metra haed i husum úr mold.

Skemmtileg ferd i flesta stadi. Mér telst reyndar til ad bilstjorinn hafi skipt 3 sinnum um dekk, baett vatni a svona 13 sinnum, einu sinni barid demparana a sinn stad aftur og einu sinni drapst a velinni af tvi ad áin sem vid vorum ad fara yfir var of djúp. Svo má heldur ekki gleyma tví tegar ein bensíntunnan datt af takinu á ferd og skoppadi um og kom sprunga i hana... Komumst samt alltaf á leidarenda á réttum tíma, tannig ad ég held ad tetta sé bara alltaf svona og sé reiknad inn i tímaáaetlunina.